Teymið

Jóna Elísabet Ottesen
Jóna Elísabet Ottesen

Stofnandi og framkvæmdarstýra

Jóna er stofnandi, brandarameistari og hugmyndasmiður hátíðarinnar og tekur virkan þátt í öllu skipulagi og sér til þess að upprunalegri hugmyndafræðinni hátíðarinnar sé fylgt. Hún er áttúrulega skapandi og faglegur bakgrunnur hennar úr kvikmyndabransanum og við stofnun ýmissa fyrirtækja, ásamt viðburðarstjórn nýtist vel í skipulagi hátíðarinnar.  

Hátíðin er ástríðuverkefni sem á hug og hjarta Jónu, en eftir að Jóna lenti í alvarlegu bílslysi árið 2019 þarf hún á NPA aðstoð að halda daglega og er því teymið henni innan handar til að hátíðin geti orðið að veruleika.

Valdís Helga Þorgeirsdóttir
Valdís Helga Þorgeirsdóttir

Stofnandi og tengilliður listamanna

Valdís Helga er annar stofnandi hátíðarinnar, aðal íþróttaálfur og meistari í orðaleikjum. Valdís er sjarmatröll með vítt tenglsanet sem hún nýtir í þágu hátíðarinnar til að skapa eftirminnilega stemnningu á sviðum hátíðarinnar.. Valdís er íþróttafræðingur, einkaþjálfari og jógakennari að mennt og nýtir þá menntun til að ýta undir líkamlega virkni gesta á skemmtilegan hátt.

Ásgerður Ottesen
Ásgerður Ottesen

Samfélagsmiðlafulltrúi og aðal klappstýra

Ása hefur starfað sem markaðsstjóri Te og Kaffi í yfir áratug og nýtir reynslu sína þar til að aðstoða við samfélagsmiðla markaðssetningu og kynningarmál fyrir hátíðina. Hún er systir Jónu og hefur tekið þátt í uppsetningu hátíðarinnar á einn eða annan hátt frá upphafi. Hún er okkar helsta klappstýra og er alltaf til í að peppa teymið og hvetja áfram.

Hafdís Arnardóttir
Hafdís Arnardóttir

Verkefnastýra og sérfræðingur í markaðsmálum

Hafdís Arnardóttir kom inn í KÁTT teymið 2018 og hátíðin er núna hennar helsta áhugamál. Hafdís er verkefnastýra hátíðarinnar í ár og hefur yfirumsjón með skipulagi. Hún er menntaður markaðsfræðingur og viðburðastjóri og hefur starfað sem verkefnastjóri hjá viðburðarfyrirtæki síðastliðin ár. Hún elskar raftónlist og Coco Puffs og Cheerios saman í skál og langar helst að hafa allt í regnboga litum alltaf. 

Slagorð: “Þetta á bara að vera gaman!”

Anna Kristín Arnardóttir
Anna Kristín Arnardóttir

Hönnun og viðburðastjórn

Anna Kristín var orkan sem KÁTT þurfti til að lifna við á ný! 

Hún kom inn í skipulagsteymið 2024 með smitandi jákvæðni og bjartsýni og varð fljótt órjúfanlegur hluti af skipulagsteyminu. Anna er grafískur hönnuður og ljósmyndari að mennt og notar þá reynslu til að sjá til þess að rauður þráður sé í öllu markaðsefni hátíðarinnar. Anna elskar Excel skjöl og litakóðun og er mjög annt um fagurfræði hátíðarinnar og að öll samskiptum innan teymisins séu skemmtileg.

Margrét Hlíf Óskarsdótt
Margrét Hlíf Óskarsdótt

Sjálfboðaliða- og viðburðastjórn

Margrét kom inn í skipulagsteymi Kátt 2024 sem nemi frá Háskólanum á Hólum þar sem hún lærði viðburðastjórnun. Hún er nú komin inn í skipulagsteymið af fullum krafti samhliða því að vera dagmamma og margra barna móðir. Hún hefur yfirumsjón yfir sjálfboðaliðunum okkar og sannar í verki “að margur er knár þótt hann sé smár”. Margrét er algjör nagli sem vippar upp partýtjöldum með tveggja metra mönnum án nokkurs erfiðis og kvartar aldrei.

Hildur Rut Hermannsdóttir
Hildur Rut Hermannsdóttir

Svæðisstjóri

Hildur Rut er líklega peppaðasta kona landsins (ef það væru til verðlauni í peppi hétu þau Hildur) og kemur með einstaka orku og jákvæðni inn í skipulagsteymið samhliða óendanlega dýrmætri og viðamikilli reynslu. Hildur kom inn í skipulagsteymið eftir að Kátt sá um Barnasvæðið á Secret Solstice 2018 þar sem Hildur var verkefnastjóri. Útfrá því hófst samstarf sem hefur reynst okkur gífurlega dýrmætt. Einstakur demantur!

Steingrímur Ingi Stefánsson
Steingrímur Ingi Stefánsson

Ævintýrsmiður

Dásamlegi Ingi okkar hefur nýtt víða reynslu sína úr kvikmyndabransanum til að græja og gera allt fyrir hátíðina, smíða borð, bekki, þrautabraut, skilti og annað sem gerir hátíðarsvæðið ævintýralegt. Ingi er maður Jónu stofnanda hátíðarinnar og hefur verið með í skipulagi og framkvæmd hátíðarinnar frá upphafi. 

Ingi er eins og sólskin í mannsmynd og gerir alla daga betri.